Jakob
Jakob | |
|---|---|
| יַעֲקֹב | |
Jakob á málverki eftir Jan Victors (1652). | |
| Gröf | Makpellahellir, Hebron, Kananslandi (samkvæmt hefð) 31°31′29″N 35°06′39″A / 31.5247°N 35.1107°A |
| Önnur nöfn | Ísrael (יִשְׂרָאֵל) |
| Maki | Lea Rakel |
| Börn | |
| Foreldrar | Ísak (faðir) Rebekka (móðir) |
| Ættingjar | Esaú (tvíburabróðir) |
Jakob, síðar nefndur Ísrael, er þriðji ættfaðir Hebrea í gyðingdómi og mikilvæg persóna í abrahamísku trúarbrögðunum. Fjallað er um Jakob í Torah (sem einnig er hluti af gamla testamenti kristnu biblíunnar), þar sem hann er sagður sonur Ísaks og Rebekku í fyrstu bók Móse. Föðurafi og -amma þeirra Jakobs og eldri tvíburabróður hans, Esaú, voru Abraham og Sara og móðurafi hans var Betúel. Sagt er að Jakob hafi keypt frumburðarrétt Esaú og beitt blekkingum til að fá föður sinn til að blessa sig í stað hans.[1] Eftir mikið þurrkatímabil í Kananslandi er sagt að Jakob og afkomendur hans hafi flutt til Egyptalands fyrir tilstilli sonar hans, Jósefs, sem var orðinn ráðunautur faraós. Sagt er að Jakob hafi látist í Egyptalandi 147 ára gamall og hafi svo verið lagður til hinstu hvílu í Makpellahelli í Hebron.
Samkvæmt Hebresku biblíunni eignaðist Jakob börn með þremur konum: eiginkonum sínum (og frænkum í móðurætt), Leu og Rakel, og ambáttum sínum, Bílu og Silpu. Synir hans voru, í aldursröð: Rúben, Símeon, Leví, Júda, Dan, Naftalí, Gað, Asser, Íssakar, Sebúlon, Jósef og Benjamín. Hann átti jafnframt dótturina Dínu með fyrstu konu sinni, Leu. Synir Jakobs voru saman þekktir sem Ísraelsmenn og hver þeirra um sig var forfaðir einnar hinna tólf kynkvísla Ísraels, sem hlutu allar nema Levítar landsvæði í landinu Ísrael. Í fyrstu Mósebók er einnig sagt frá því að Jakob hafi haldið mest upp á Rakel og syni sína með henni, Jósef og Benjamín. Þetta leiddi til þess að eldri bræður Jósefs lögðu fæð á hann og seldu hann í þrældóm.
Fræðimenn greinir á um hvort Jakob hafi verið til sem söguleg persóna en fornleifarannsóknir hafa ekki gefið neinar vísbendingar um að svo sé.[2][3] Fornleifafræðingurinn William Albright taldi að Jakob hefði verið uppi á 19. öld f.Kr. en seinni tíma fræðimenn á borð við John J. Bimson and Nahum Sarna hafa mælt gegn því að nota fornleifafræði til að styðja slíkar fullyrðingar vegna takmarkaðrar þekkingar okkar á þessu tímabili. Nýlegar rannsóknir eftir Thomas L. Thompson og William Dever benda til þess að sögurnar um Jakob hafi verið skrifaðar síðar í hugmyndafræðilegu skyni fremur en að vera sannsögulegar heimildir.
Nafnsifjar
[breyta | breyta frumkóða]Samkvæmt 1. Mósebók 25:26 er nafnið Yaʿaqōv יעקב dregið af ʿaqev עָקֵב, sem þýðir „hæll“ því þegar Jakob fæddist hélt hann um hælinn á tvíburabróður sínum, Esaú.[4][5] Sögulegur uppruni nafnsins er óljós en heimildir eru til um önnur svipuð nöfn. Nafnið Yaqub-Har hefur fundist á lista yfir örnefni eftir Tútmósis 3. (frá 15. öld f.Kr.) og síðar sem nafn faraós Hyksosþjóðarinnar. Híeróglýfurnar eru margræðar og hægt er að lesa þær sem „Yaqub-Har“, „Yaqubaal“ eða „Yaqub El“. Enn eldri heimildir eru til um nafnið, í fleygrúnaletri frá því í kringum 1800 f.Kr.[6] Bright (1960) lagði fram þá tilgátu að nafnið Jakob sé stytting á nafni með viðskeytinu „El“, sem merkir „megi El vernda“.[7] Önnur afbrigði af nafninu Jakob hafa fundist í heimildum á amorítamáli.[8]
Nafnið Ísrael, sem Jakob hlaut eftir atvik þar sem hann glímdi við engil (í 1. Mósebók 32:22) er samsett úr אֵל el „guð“ og rótinni שָׂרָה śarah sem merkir „að ráða, glíma við, hafa vald yfir, sigra“:[9] שָׂרִיתָ עִם־אֱלֹהִים („því að þú hefir glímt við Guð og menn og fengið sigur“). Einnig er hægt að lesa el sem frumlagið og túlka nafnið sem „El ræður/glímir/berst“.[10]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Esau and Jacob and the Birthright“. Life, Hope & Truth (enska). Sótt 16. september 2019.
- ↑ Faust, Avraham (2022). „Between the Biblical Story and History: Writing an Archaeological History of Ancient Israel“. Í Keimer, Kyle H.; Pierce, George A. (ritstjórar). The Ancient Israelite World. Taylor & Francis. bls. 71–72. ISBN 978-1-000-77324-8.
- ↑ Dever, William G. (2023). „Christian Fundamentalism, Faith, and Archaeology“. Í Elliott, Mark; Atkinson, Kenneth; Rezetko, Robert (ritstjórar). Misusing Scripture: What are Evangelicals Doing with the Bible?. Taylor & Francis. bls. PT110. ISBN 978-1-000-85301-8.
- ↑ Biblían. Fyrsta bók Móse. 25:26. „Og eftir það kom bróðir hans í ljós, og hélt hann um hælinn á Esaú, og var hann nefndur Jakob.“
- ↑ David Noel Freedman; Allen C. Myers (31. desember 2000). Eerdmans Dictionary of the Bible. Amsterdam University Press. bls. 666. ISBN 978-90-5356-503-2.
- ↑ Victor P. Hamilton, The Book of Genesis, Chapters 18–50 (1995), bls. 179.
- ↑ Jonathan Z. Smith, Map is Not Territory: Studies in the History of Religions, University of Chicago Press (1978), bls. 33.
- ↑ Millard, Alan (2024). „Patriarchal Names in Context“. Tyndale Bulletin. 75 (desember): 155–174. doi:10.53751/001c.117657. ISSN 2752-7042.
- ↑ שָׂרָה śarah "to contend, have power, contend with, persist, exert oneself, persevere" (Strong's Concordance H8323); שָׂרַר śarar "to be or act as prince, rule, contend, have power, prevail over, reign, govern" (Strong's Concordance h8280)
- ↑ "The Jewish Study Bible" of Oxford University Press (bls. 68=) "The scientific etymology of Israel is uncertain, a good guess being '[The God] El rules.'"