Fara í innihald

Julian Assange

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Julian Assange
Assange árið 2014
Fæddur3. júlí 1971 (1971-07-03) (55 ára)
ÞjóðerniÁstralskur
RíkisfangÁstralía
Ekvador (2017–2021)
StörfRitstjóri, forritari, blaðamaður, stjórnmálamaður
MakiTeresa Doe (g. 1989; skilin 1999)
Sarah Harrison (2009-2012)
Stella Assange ​(g. 2022)
Börn4
Undirskrift

Julian Assange (fæddur 1971) er ástralskur blaðamaður, aðgerðasinni og forritari. Assange er þekktastur fyrir það að vera talsmaður og aðalritstjóri Wikileaks.

Julian Assange fæddist í Townsville, Queensland, Ástralíu. Foreldrar hans höfðu kynnst á mótmælafundi gegn Víetnamstríðinu en faðir hans yfirgaf fjölskylduna þegar Julian var ungur og því ól móðir hans, Christine, hann upp ásamt seinni eiginmanni sínum, leikaranum og leikhússtjóranum Brett Assange.[1] Nafnið Assange er talið vera afbökun á kínverska nafninu Ah Sang.[2]

Assange bjó meginhluta æskuára sinna á Magnetic Island, en fluttist eftir það mjög víða um Ástralíu og nam við marga grunn- og háskóla. Hann var meðhöfundur bókarinnar Underground ásamt Suelette Dreyfus um undirheima internetsins.[3] Í undirheimum internetsins var hann þekktur undir heitinu mendax og var þekktur fyrir að geta skurkað sig inn á flóknustu öryggiskerfi heims. Ein af höfuðreglum hans, sem hann nefnir í bókinni Underground, var að skemma aldrei þau tölvukerfi sem hann brýst inn í. Í september 1991 skurkaði hann sig inná stjórnstöð kanadíska fjarskiptafyrirtækisins Nortel. Í dómsúrskurðinum segir dómarinn um ástæðu brotsins: „Það eru engar sannanir fyrir öðru en þarna væri á ferðinni þorsti fyrir þekkingu og nautnin við að geta vafrað um mismunandi tölvur“. Niðurstaða dómsins var að greiða ríkinu litla upphæð í skaðabætur.[4]

Assange var handtekinn í Lundúnum þann 7. desember 2010 vegna ásakana um kynferðisbrot.[5] Hann var leystur úr haldi 16. desember 2010 gegn 240.000 punda tryggingu.[6]

Árið 2012 fékk Assange hæli í sendiráði Ekvador í London til að forðast að vera handtekinn og framseldur til Svíþjóðar vegna ásakana um nauðgun. Assange dvaldist í sendiráðinu í heil sjö ár, allt þar til honum var úthýst og hann handtekinn af breskri lögreglu þann 11. apríl árið 2019.[7][8] Blaðamenn án landamæra og ýmis mannúðarsamtök skilgreindu Assange sem pólitískan fanga.[9]

Assange dvaldi í Belmarsh-fangelsi í London í Bretlandi næstu árin á meðan rætt var um hvort framsal hans til Bandaríkjanna yrði heimilað. Honum var loks sleppt úr fangelsi þann 24. júní 2024 eftir að hann gerði dómssátt við dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna.[10]

Eitt og annað

[breyta | breyta frumkóða]
  • Julian eignaðist son 18 ára gamall.
  • Birgitta Jónsdóttir, fyrrum þingmaður Pírata hefur stutt Julian og vinnu hans fyrir WikiLeaks og kom meðal annars að gerð handrits kvikmyndarinnar Fifth Estate.
  • Leigh, David; Harding, Luke (2011). WikiLeaks: Stríðið gegn leyndarhyggju. Þýðing eftir Arnar Matthíasson. Reykjavík: Veröld. ISBN 9789979789840.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ Leigh & Harding 2011, bls. 44.
  2. ↑ Leigh & Harding 2011, bls. 45.
  3. ↑ Profile: Wikileaks founder Julian Assange British Broadcasting Corporation. Skoðað þann 6. desember 2010
  4. ↑ Wikileaks and Julian Paul Assange The New Yorker. Skoðað þann 6. desember 2010
  5. ↑ „Assange handtekinn“. Sótt 9. desember 2010.
  6. ↑ Assange leystur úr haldi Morgunblaðið Skoðað þann 19. desember 2010
  7. ↑ „Búið að handtaka Assange í London“. mbl.is. 11. apríl 2019. Sótt 11. apríl 2019.
  8. ↑ „Julian Assange handtekinn í Lundúnum“. RÚV. 11. apríl 2019. Sótt 11. apríl 2019.
  9. ↑ „„Fyrst og fremst pólitískar ofsóknir"“. mbl.is. 20. apríl 2022. Sótt 26. apríl 2023.
  10. ↑ Lovísa Arnardóttir (25. júní 2024). „Gleði­­tíðindi að koma Ass­an­­ge loks úr fangelsi“. Vísir. Sótt 25. júní 2024.
  Þetta æviágrip er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.