Fara í innihald

MGMT

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
MGMT
MGMT á Oxegen 2008.
MGMT á Oxegen 2008.
Upplýsingar
UppruniMiddletown, Connecticut, Bandaríkjunum
Ár2005 – í dag
StefnurÖðruvísi rokk
ÚtgáfufyrirtækiColumbia Records
Red Ink
Cantora Records
MeðlimirAndrew VanWyngarden
Benjamin Goldwasser
James Richardson
Matt Asti
Will Berman
Vefsíðawhoismgmt.com/

MGMT,[1] hét upprunalega „The Management“ („The Management“ var notað af annarri hljómsveit og þess vegna var heitið stytt í „MGMT“), er bandarískur dúett frá Brooklyn í New York sem samanstendur af Ben Goldwasser og Andrew VanWyngarden. Þeir voru upprunalega skráðir hjá Cantora Records, en núna eru þeir skráðir hjá Columbia Records/Red Ink/Sony árið 2006.

Þann 5. október 2007 tilkynnti tónlistartímaritið Spin.com að MGMT væri „hljómsveit dagsins“.[1] Þann 14. nóvember 2007 nefndi tímaritið Rolling Stone MGMT sem topp 10 „Artist to Watch“ ársins 2008.[2] Hljómsveitin fékk 9. sæti í Sound of 2008 top 10 könnuninni af BBC.[3] Þeir voru líka nefndir mest spilaðasta hljómsveit ársins 2008 á Last.fm vefsíðunni.[4]

Í október 2007 var gefið út fyrsta plata eftir hljómsveitinni Oracular Spectacular sem vann 12. sæti á breska vinsældalistanum og 6. sæti á ástralska vinsældalistanum. NME nefndi hana besta plata ársins 2008.[5]

Oracular Spectacular (2005-2009)

[breyta | breyta frumkóða]

Fyrsta plata MGMT er Oracular Spectacular. Oracular Spectacular hefur skotið hljómsveitinni MGMT upp á stjörnuhimininn.

Í tónlistardómi Rjómans, íslensks vefrits um tónlist, segir að Oracular Spectacular er ein af þessum fágætu plötum sem hreinlega kalla á að vera spilaðar aftur og aftur."[6] Íslenska rokk útvarpstöðin Xið-977, valdi Oracular Spectacular sem plötu vikunnar þann tuttugasta og annan apríl, árið 2008.[7]

Jónsi, úr hljómsveitinni Sigur Rós, tók þekju á laginu Time to Pretend. Lagið er að finna á plötu MGMT, Oracular Spectacular. Jónsi flutti þekjuna í þættinum Live Lounge, á útvarpstöðinni BBC Radio 1. [8]

Congratulations (2009-2011)

[breyta | breyta frumkóða]

Congratulations, er seinni plata MGMT. Platan Congratulations er blanda af mörgum tónlstarstefnum, eins og sækadeliku, mod-rokks, freak-folk, 80’s nýbylgju og pönks.

Congratulations hefur hlotið lof íslenskra gagnrýnenda. Í tónlistardómi Rjómans, segir að "Congratulations er hálfgerð rússibanareið þar sem óvæntar beygjur, hringsnúningar, dýfur, hólar og hæðir kasta hlustandanum til og frá". Rjóminn gefur plötunni Congratulations í einkunn 4 af 5 mögulegum. [9] Rjóminn valdi jafnframt lag af plötunni Congratilations, "Song for Dan Treacy" á lista 10 bestu erlendu lögin 2010.[10] Umsögn Popplands, þátt Rásar eitt um popptónlist, er á svipaða leið. Poppland valdi plötuna, Congratulations, sem erlenda plötu vikunnar, þann þriðja maí árið 2010.[11]

Ekki eru þó allir sammála íslensku tónlistarspekingunum á vefritinu Rjómanum, og í útvarpsþættinum Popplandi. Í yfirlýsingu frá MGMT, þá báðust þeir afsökunar á plötu sinni, Congratutions. Forsprakkar sveitarinnar, þeir Andrew VanWyngarden og Ben Goldwasser segja að platan innihaldi enga smelli, og þeir séu hissa á að plötufyrirtæki þeirra, Sony/Columbia hafi leyft þeim að gefa plötuna út. [12]

Breiðskífur

[breyta | breyta frumkóða]
  • Oracular Spectacular (2007)
  • Congratulation (2010)
  • MGMT (2013)
  • Little Dark Age (2018)
  • 11•11•11 (2022)
  • Loss of Life (2024)
  1. 1 2 D'Amato, Anthony M. „Artist of the Day: MGMT“. Spin.com. Afrit af upprunalegu geymt þann 9. júlí 2008. Sótt 5. október 2007.
  2. ↑ O'Donnell, Kevin. „Artist to Watch: MGMT“. Rolling Stone. Afrit af upprunalegu geymt þann 7. apríl 2013. Sótt 14. nóvember 2007.
  3. ↑ „Record of the Week“. BBC Radio. 4. janúar 2008. Sótt 24. mars 2008.
  4. ↑ „Last.fm Best of 2008“. Last.fm. 14. desember 2008. Afrit af upprunalegu geymt þann 9. mars 2016. Sótt 14. desember 2008.
  5. ↑ New Musical Express, gefin út þann 8. desember 2008.
  6. ↑ „MGMT - Oracular Spectacular“. Rjóminn, íslenskt vefrit um tónlist. Afrit af upprunalegu geymt þann 19. júlí 2011. Sótt 26. ágúst 2010.
  7. ↑ „Púlsinn frétt“. Xið-977, rokk útvarpstöð. Sótt 26. ágúst 2010.[óvirkur tengill]
  8. ↑ „Jónsi þekur MGMT“. Rjóminn, íslenskt vefrit um tónlist. Afrit af upprunalegu geymt þann 26. maí 2010. Sótt 26. ágúst 2010.
  9. ↑ „MGMT - Congratulations“. Rjóminn, íslenskt vefrit um tónlist. Afrit af upprunalegu geymt þann 8. júní 2010. Sótt 26. ágúst 2010.
  10. ↑ „10 bestu erlendu lögin sem af er ári“. Rjóminn, íslenskt vefrit um tónlist. Afrit af upprunalegu geymt þann 21. september 2010. Sótt 26. ágúst 2010.
  11. ↑ „MGMT - Congratulations Poppland“. Poppland, poppþáttur Rásar 1. Afrit af upprunalegu geymt þann 10. maí 2010. Sótt 26. ágúst 2010.
  12. ↑ „MGMT biðst "fyrirgefningar"“. Morgunblaðið, dagblað. Sótt 26. ágúst 2010.