Markland
![Skálholtskortið svo kallaða sem sem sýnir latneskar útgáfur af norrænum örnefnum í Norður-Atlantshafi. Kortið var upphaflega gert af Sigurði Stefánssyni, skólameistara í Skálholti 1590. Sú gerð er horfin en afrit Þórðar biskups Þolákssonar frá 1690 hefur varðveist. ''Iotun-heimar'' ([[Jötunheimar]]) ''Riseland'' (Risaland]]) | ''Grönlandia'' ([[Grænland]]) | ''Helleland'' ([[Helluland]]) | [[Markland]] | ''Skrælinge Land'' (Skrælingaland]]) | ''Promontorium Winlandiæ'' (Vinlandsskagi]])](https://is.wikipedia.org//thumb.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/a/a8/Sk%C3%A1lholt_map_1690_copy_%28cropped%29.png/250px-Sk%C3%A1lholt_map_1690_copy_%28cropped%29.png?utm_source=is.wikipedia.org&utm_campaign=parser&utm_content=thumbnail)
- Iotun-heimar (Jötunheimar)
- Riseland (Risaland)
- Grönlandia (Grænland)
- Helleland (Helluland)
- Markland
- Skrælinge Land (Skrælingaland)
- Promontorium Winlandiæ (Vinlandsskagi)
Markland var, ásamt Vínlandi og Hellulandi, landsvæði vestan við Grænland sem Bjarni Herjólfsson sá álegndar, Leifur Eiríksson nafngaf og Þorfinnur Karlsefni Þórðarson kannaði samkvæmt Grænlendinga sögu og Eiríks sögu rauða. Markland var sunnan við Helluland en norðan við Vínland. Ekki er vitað með vissu hvar það landsvæði sem nefnt var Markland var, en flestir fræðimenn telja það hafa verið suðurhluti Labrador og mögulega einnig Nýfundnaland.[1][2] Það hlýtur þó að hafa verið fyrir sunnan Groswater-flóa (enska: Groswater Bay; Inuttitut: Kangerliorsoak) á miðri vesturströnd Labrador, þar fyrir norðan er skóglaust túndrulandslag. Suðurhluti Labrador og Nýfundnalands eru hinsvegar í barrskógabeltinu.[3]
Fyrsti hluti nafnsins er fornnorræna orðið mǫrk sem þýðir skógur.[4]
Fundur Marklands
[breyta | breyta frumkóða]Einu heimildirnar sem fjalla nokkuð ítarlega um landafundi Grænlands og landsvæða vestan við Labradorhaf í kringum ár 1000 eru Grænlendinga saga og Eiríks saga rauða. Báðar sögurnar segja frá svipuðum persónum, á svipuðum stöðum og á svipuðum tímum en ber einnig á milli um margt.
Í Grænlendinga sögu hefst frásögn af þessum landafundum á því að Bjarni Herjúlfsson kemur frá Noregi til Eyrarbakka en fréttir þá af för föður hans til Grænlands og ákveður að fylgja eftir. Hann viltist í þoku á leiðinni en sér síðar til lands. Bjarni taldi þetta ekki vera vera Grænland og siglir í nánd við landið, sem var ófjöllótt og skógi vaxið og smáar hæðir á landinu. Hann sigldi síðan áfram og sá þá annað land sem var slétt og viði vaxið. Sá hann síðar þriðja landið sem var hátt og fjöllótt og jökull á og sáu að það var eyland og tók síðan stefnuna frá landinu. Fjórða landið sem þeir komu að var Grænland og hittir þar Bjarni föður sinn. Bjarni steig aldrei á land þar sem hann hafði siglt hjá samkvæmt sögunni og gaf engum stað nafn.[5]
Síðan segir í Grænlendinga sögu að Leifur sonur Eiríks rauða hafi frétt af siglingu Bjarna og kaupir skipið af honum. Sigldi hann síðan í haf með samfylgdarmönnum sínum og fundu fyrst það land sem Bjarni fann síðast. Leist Leifi ekki á landið og kallaði Helluland. „Eftir þetta sigla þeir í haf og fundu land annað, sigla enn að landi og kasta akkerum, skjóta síðan báti og ganga á landið. Það land var slétt og skógi vaxið og sandar hvítir víða þar sem þeir fóru og ósæbratt "[Giskað hefur verið á að hér sé um að ræða 65 km langa hvíta sandströnd sem er suður af skaganum Cape Porcupine á Labrador-strönd.]
"Þá mælti Leifur: „Af kostum skal þessu landi nafn gefa og kalla Markland." [6] Sigla þeir síðan áfram í landaleit.
Í Eiríks sögu rauða kemur hins vegar Bjarni Herjúlfsson ekki fyrir en sagan segir hins vegar frá för Þorfinns Karlsefni að leita Vínlands. En í Eiríks sögu rauða er sagt frá því að Leifur Eiríksson hafi orðið hafvilltur þegar hann var á siglinu frá Noregi til Grænlands. „Leif velkti lengi úti og hitti hann á lönd þau er hann vissi áður öngva von í. Voru þar hveitiakrar sjálfsánir og vínviður vaxinn. Þar voru og þau tré er mösur hétu og höfðu þeir af öllu þessu nokkur merki, sum tré svo mikil að í hús voru lögð.“[7] Ekki er sagt að Leifur hafi gefið þessum löndum nöfn.
Siðar í Eiríks sögu rauða segir frá ferðum Þorfinns Karlsefnis í leit að löndum. Þorfinnur og samferðamenn hans hefja ferð sína frá Bröttuhlíð í Austurbyggð: „Sigldu þeir undan síðan til Vestribyggðar og til Bjarneyja. Sigldu þeir þaðan undan Bjarneyjum norðan veður. Voru þeir úti tvö dægur. Þá fundu þeir land og reru fyrir á bátum og könnuðu landið og fundu þar hellur margar og svo stórar að tveir menn máttu vel spyrnast í iljar. Melrakkar voru þar margir. Þeir gáfu nafn landinu og kölluð Helluland'.
Þá sigldu þeir norðan veður tvö dægur og var þá land fyrir þeim og var á skógur mikill og dýr mörg. Ey lá í landsuður undan landinu og fundu þeir þar bjarndýr og kölluðu Bjarney en landið kölluðu þeir Markland. Þar er skógurinn'“. [8] Sigldu þeir síðan áfram suður.
Í sögu Eiríks rauða er sagt að Markland sé sunnan við Helluland, norðan við Vínland undan Kjalarnesi, norðvestur af eyju sem kallast Bjarney, og að sögn Skrælingjanna sem Karlsefni tók væri Hvítramannaland „öðrumegin gagnvart sínu landi.“ [9]
Marckalada
[breyta | breyta frumkóða]Eina þekkta heimildin um Markland á miðöldum utan Norðurlanda er í króníku, sem nefnd er Cronica universalis, sem ítalski munkurinn Galvaneus Fiamma (ítalska Galvano Fiamma, f. 1283, d. 1344) frá Mílanó skrifaði á fyrri hluta 14. aldar. Hann virðist hafa verið fyrstur manna í Suður-Evrópu til að skrifa um lönd vestan við Grænland, og er þetta eina þekkta heimildin um Nýja heiminn fyrir ferð Kólumbusar árið 1492. Fiamma skrifaði fjölmörg rit um söguleg efni.[10]
Í Cronica universalis skrifar Fiamma svo um Island, Grænland og Markland:
„Lengra norður er úthafið, haf með mörgum eyjum þar sem er mikið af förufálkum og hvítfálkum. Þessar eyjar eru svo langt norður að pólstjarnan er sunnan við þig. Sjómenn sem sigla um höf Danmerkur og Noregs segja að norður yfir, handan Noregs, sé Yslandia [Ísland]; enn lengra er eyja sem heitir Grolandia [Græland];, … . Landstjóri þessarar eyju er biskup. Í þessu landi er hvorki hveiti né vín né ávextir; fólk lifir á mjólk, kjöti og fiski. Það býr í jarðarhúsum og þorir ekki að tala hátt eða gera neinn hávaða, af ótta við að villidýr heyri í þeim og éti þau. Þar búa risavaxnir hvítir birnir, sem synda í sjónum og flytja skipbrotna sjómenn upp að ströndinni. Þar búa hvítir fálkar, sem geta flogið mikið, sem eru sendir til keisarans í Katai [Kína]. Lengra í vestur er annað land, sem heitir Marckalada [Markland]; þar búa risar. Í þessu landi eru byggingar úr svo stórum steinhellum að enginn mundi hafa getað byggt með þeim nema miklir risar. Þar eru líka græn tré, dýr og mikill fjöldi fugla. Hins vegar hefur enginn sjómaður nokkurn tíma getað sagt neitt með vissu um þetta land eða um einkenni þess. Af öllum þessum staðreyndum er þó ljóst að það eru byggðir á norðurslóðum.“[11]
Áður en handritið af Cronica universalis fannst árið 2021 höfðu engar heimildir verið um þekkingu utan Norðurlanda um lönd handan Atlanthafs fyrir ferð Kólumbusar árið 1492. Paolo Chiesa, prófessor í miðalda latneskum bókmenntum við Háskólann í Mílanó, telur að Fiamma hafi frétt af Nýja heiminum frá sjómönnum í hafnarborginni Genúa.[12]
Marklandsviður
[breyta | breyta frumkóða]
Í Grænlendingasögu er sagt Leifur hafi látið höggva farm á skipið áður en þeir sigla heim til Grænlands eftir dvöl á Marklandi eða Vínlandi. Einnig er þess getið að Karlefni hafi haft með sér húsasnotru[13] úr mösurtré frá Grænlandi til Noregs og selt þar.
Líklegt er að norrænir Grænlendingar hafi haldið áfram að fara til landana handan við Labradorhaf bæði til rostungaveiða og mögulegra skiptiverslunar við frumbyggja[14] á þeim nærri 500 sem byggðin stóð á Grænlandi.
1347
[breyta | breyta frumkóða]Eina skriflega heimildin sem bendir til timburferða til Marklands var skráð í Skálholts annál (sem var skráður um 1362), og segir um árið 1347 að þá hafi komið skip, minna en för á Íslandi, af Grænlandi í Straumfjörð ytri (á Snæfellsnesi) akkerislaust. Á því voru 17 manns og hafði það farið til Marklands og síðan orðið hafreka til Islands.[15]
Talið er að skipið hafi farið til Marklands til að ná í timbur.[16] Eftir fjölda mannanna í skipunu hefur það ekki verið öllu stærra en átt- til tólfæringur.[17]
Viðargreining
[breyta | breyta frumkóða]
Til að rannsaka uppruna timburs á Grænlandi skoðaði Lísabet Guðmundsdóttir frá Háskóla Íslands trjáleifar frá fimm norrænum bæjum þar, þar af fjórum meðalstórum bújörðum og biskupssetrinu í Görðum. Gerðar voru rannsóknir á 8.552 viðarbútum. Með því að skoða þunna viðarhluta í smásjá var hægt að rannsaka frumubygginga viðarbútannna og var hægt að finna uppruna og tegundir viðarins. Öll sýnin voru einnig tímagreind. Um 36% av öllum sýnum voru innlendar tegundir. Af heildinni reyndist rekaviður vera um 25%, það er lerki (Larix), greni (Picea) og skógarfura (Pinus sylvestris). Innfluttur viður kom frá Evrópu, meðal annars eik (Quercus), beyki (Fagus) og fura. En þar voru einnig trjátegundir sem án efa komu frá austurströnd Norður-Ameríku, kanadaþöll einnig kölluð skógarþöll (Tsuga canadensis), gráfura (Pinus banksiana) og Sandfura (Pinus strobus) Það þýðir að Grænlendingarnir hljóta að hafa sótt timbur frá Norður-Ameríku. Labradorstraumurinn flæðir úr Norður-Íshafi meðfram strönd Labrador, og Nýfundnalands og áfram suður með Nova Scotia þannig að þetta getur getur ekki hafa verið rekaviður. Þessar niðurstöður benda á að norrænir Grænlendingar höfðu aðstöðu, þekkingu og skipakost til að fara yfir Davis sundið til austurstrandar Norður-Ameríku að minnsta kosti allt fram að lok fjórtándu aldar.[18][19]
Sjá einnig
[breyta | breyta frumkóða]Tilvitnanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Jónas Kristjánsson et al. (2012) "Falling into Vínland", Acta Archaeologica 83, bls. 145-177
- ↑ Campbell, Gordon (25 March 2021). Norse America: The Story of a Founding Myth. Oxford University Press. fig. 3.1. ISBN 978-0-19-260598-6.
- ↑ Ellen Jakubowski (2025). [ https://wwf.ca/stories/native-plants-newfoundland-labrador/ NATIVE PLANTS OF NEWFOUNDLAND AND LABRADOR: RUGGED, USEFUL — SOMETIMES CARNIVOROUS] WWF
- ↑ Íslansk orðsifjabók
- ↑ Grænlendinga saga
- ↑ https://www.snerpa.is/net/isl/graens.htm Grænlendinga saga] Snerpa
- ↑ Eiríks saga rauða
- ↑ Eiríks saga rauða
- ↑ Fitzhugh, William W, et al.(2000) Vikings : The North Atlantic Saga. Smithsonian Institution Press in association with the National Museum of Natural History. ISBN : 1560989955
- ↑ Chiesa, Paolo (2021-05-04)."Marckalada: The First Mention of America in the Mediterranean Area (c. 1340)". Terrae Incognitae. 53 (2): 88–106. doi:10.1080/00822884.2021.1943792. hdl:2434/860960. ISSN 0082-2884. S2CID 236457428.
- ↑ Postea versus tramontanam est mare occeanum, ubi sunt insule multe in quibus nascuntur falcones peregrini et gyrifalchi in maxima quantitate. Et iste insule sunt tantum versus tramontanam quod stella tramontana remanet a tergo versus meridiem. Et dicunt marinarii qui conversantur in mari Datie et Norvegye quod ultra Norvegiam versus tramontanam est Yslandia. Et inde est insula dicta Grolandia …, ubi unus episcopus dominatur. Ibi non est granum nec vinum nec fructus, sed vivunt de lacte et carnibus et piscibus. Habent domus subterraneas in quibus habitant, nec audent clamare vel aliquem rumorem facere ne bestie eos audirent et devorarent. Ibi sunt ursi albi magni nimis, qui natant per mare et naufragos ad litus conducunt; ubi nascuntur falcones albi magni volatus qui mittuntur ad imperatorem Tartarorum de Kata. Inde versus occidens est terra quedam que dicitur Marckalada, ubi gigantes habitant et sunt hedifitia habentia lapides saxeos tam grandes quod nullus homo posset in hedifitio collocare nisi essent gygantes maximi. Ibi sunt arbores virides et animalia et aves multe nimis. Nec umquam fuit aliquis marinarius qui de ista terra nec de eius condictionibus aliquid scire potuerit pro certo. Ex his omnibus apparet quod sub pollo artico est habitatio. Paolo Chiesa, “Summa cronicarum. Un’opera incompiuta e perduta di Galvano Fiamma”. Filologia mediolatina. Rivista della Fondazione Ezio Franceschini, Volume: 24 (2017), bls. 305–21.
- ↑ Fiamam, 2017
- ↑ útskorið gaflskraut á húsi’ https://ordsifjabok.arnastofnun.is/faersla/18321[óvirkur tengill] Húsasnotra Íslensk oðabók
- ↑ E.J. Ruiz- Puerta, G. Jarrett 3*, M. L. McCarthy, S. En Pan, X. Keighley, M. Aiken, G. Zampirolo, M. J. J. E. Loonen, A. B Gotfredsen, L. R. Howse, P. Szpak, Snæbjörn Pálsson, S Rufolo, Hilmar J. Malmquist, S. P. A. Desjardins, M. T. Olsen, P. D. Jordan (2024). Greenland Norse walrus exploitation deep into the Arctic Science Advances Volume 10, Issue 39 Sep 2024. https://doi.org/10.1126/sciadv.adq4127
- ↑ Þa kom ok skip af Grænlandi minna at vexti enn sma Islandz fór. þat kom i Straum fiórð inn ytra. þat var akkeris laust. þar voru á .xvij. menn ok hófðu farit til Marklandz enn siðan vordit hingat hafreka. Skálholts-Annálar
- ↑ Brandon M. Bender (21. oktober 2025). «The Disappearance of Norse Greenland». World History Encyclopedia, www.worldhistory.org.
- ↑ Kollvarpar fyrri hugmyndum um landnám Grænlands. Sjómannadagsblaðið, 30. maí 1965 — 28. árgangur.
- ↑ Lísabet Guðmundsdóttir (2023). Timber imports to Norse Greenland: lifeline or luxury? (enska). Cambridge University Press].
- ↑ Lasse Biørnstad (2023). Vikingene på Grønland importerte trær fra Nord-Amerika, ifølge forsker. Tímaritið Forskning.no, 25.04.2023