Forsíða
60.581 greinar á íslensku.
Fallbyssa
Fallbyssa er mjög stór byssa, oftast á vagni, fæti eða stalli, sem í eru notuð þung skot. Fallbyssur voru fyrst fundnar upp í Kína um 1150 e.Kr. Svartpúður var notað sem drifefni. Þegar svartpúður brann myndast gas og það þeytti skotinu úr fallbyssuhlaupinu. Fallbyssur bárust til Evrópu á 14. öld. Útbreiðsla þeirra olli aukinni eftirspurn eftir brennisteini og saltpétri sem notuð voru til að framleiða svartpúður. Ísland flutti út brennistein til púðurgerðar frá 14. öld og fram á 19. öld. Fallbyssuhlaup voru framleidd úr bronsi og látúni fram á seinni hluta 19. aldar þegar byrjað var að framleiða fallbyssuhlaup úr stáli. Á 20. öld urðu fallbyssur langdrægari og öflugri. Nýjar tegundir fallbyssna eins og skriðdrekavarnarbyssur, skriðdrekabyssur, loftvarnabyssur og vélfallbyssur komu einnig fram á 20. öld þegar hertækni fleygði fram. Eftir seinni heimsstyrjöldina tóku eldflaugar við hlutverki fallbyssna sem meginvopn herskipa og voru hentugri til að granda skriðdrekum. Loftvarnabyssur eru þó enn notaðar í hernaði og stórskotalið er enn eitt af mikilvægustu vopnun nútímavígvallarins
Vissir þú...

- … að um helmingur allra íbúa Paragvæ lést í Paragvæstríðinu 1864–1870?
- … að barnastjarnan Shirley Temple varð á fullorðinsárum sínum sendiherra Bandaríkjanna í Gana og Tékkóslóvakíu?
- … að samkvæmt hefðum ástralskra frumbyggja áttu eingöngu karlmenn að leika á hljóðfærið didgeridoo (sjá mynd)?
- … að metþátttaka í Reykjavíkurmaraþoninu var árið 2014, þegar 15.552 þáttakendur voru skráðir?
- … að titill bókarinnar Lord of the Flies er vísun í viðurnefni djöfulsins Belsebúbs?
Fréttir

- 25. október:
- Luiz Inácio Lula da Silva (sjá mynd) er endurkjörinn forseti Brasilíu.
- Pólitísk mótmælahreyfing stúdenta sigrar ríkisstjórn Aleksandars Vučić í þingkosningum í Serbíu.
- 8. október: Kanadíski rithöfundurinn Anne Carson hlýtur Nóbelsverðlaunin í bókmenntum.
Yfirstandandi: Innrás Rússa í Úkraínu / Stríð Rússlands og Úkraínu • Íransstríðið
Nýleg andlát: Dennis Hastert (3. október) • Margaret Hamilton (30. september)
26. október
- 2000 - Yfirvöld í Pakistan sögðu frá fundi múmíu persneskrar prinsessu í Balúkistan. Íran, Pakistan og Talíbanar gerðu öll tilkall til múmíunnar þar til ári síðar að sannað var að hún var fölsun.
- 2001 - George W. Bush undirritaði Patriot-lögin.
- 2007 - Stýrikerfið Mac OS X v10.5 („Leopard“) kom út.
- 2008 - Átökin í Kivu í Kongó blossuðu upp á ný.
- 2009 - Tilkynnt var að McDonald's á Íslandi yrði lokað.
- 2010 - Um 300 fórust vegna endurtekinna gusthlaupa í Merapifjalli á Jövu í Indónesíu.
- 2012 - Fyrrum forsætisráðherra Ítalíu, Silvio Berlusconi, var dæmdur í 4 ára fangelsi vegna skattsvika.
- 2015 - 398 létust þegar jarðskjálfti reið yfir Hindu Kush-fjallgarðinn.
- 2020 - Amy Coney Barrett tók við stöðu hæstaréttardómara í Bandaríkjunum.
Systurverkefni
|
|