1435
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1435 (MCDXXXV í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- 5. janúar - Jón Vilhjálmsson Craxton Hólabiskup var í Flórens og veitti Evgeníus 4. páfi honum lausn frá biskupsstörfum á Hólum og lét hann fá Skálholt í staðinn, þar sem hafði verið biskupslaust. Þó bentir allt til þess að Gozewijn Comhaer hafi verið vígður Skálholtsbiskup sama ár. Hann fór til Íslands 1437.
- Jón Bloxwich varð biskup á Hólum. Hann kom aldrei til Íslands.
- Einar Ísleifsson var vígður ábóti í Munkaþverárklaustri.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- Magnús Eyjólfsson, biskup í Skálholti (d. 1490).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- Þorsteinn Ólafsson, lögmaður norðan og vestan.
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 11. janúar - Sænska ríkisráðið valdi uppreisnarleiðtogann Engelbrekt Engelbrektsson sem nýjan valdhafa Svíþjóðar.
- 2. febrúar - René af Anjou varð konungur Napólí.
- 8. maí - Þýska borgin Speyer gaf Gyðingum 6 mánaða frest til að yfirgefa borgina.
- 9. maí - Hundrað ára stríðið: Frakkar unnu stórsigur á Englendingum við Gerberoy þar sem Englendingar töpuðu yfir 1.000 hermönnum og Frakkar aðeins um 30.
- 1. júní - Umsátrið um París hófst þegar franskir konungssinnar sátu um borgina sem var á valdi Englendinga.
- 8. júní - Dómkirkjan í Uppsölum var vígð.
- 15. og 17. júlí - Samið var um frið milli Danakonungs og greifanna í Holsetalandi og Hansakaupmanna í Vordingborg.
- 5. ágúst - Floti Hertogadæmisins Mílanó vann sigur á flota Alfons 5. Aragóníukonungs sem var handsamaður.
- 21. september - Arras-sáttmálinn á milli Karls 7. Frakkakonungs og Filippusar góða Búrgundarhertoga undirritaður. Þar með lauk bandalagi Búrgundarmanna og Englendinga gegn Frakkakonungi.
- 14. október - Eiríkur af Pommern var aftur tekinn til konungs í Svíþjóð en hann hafði verið settur af ári áður.
- 31. desember - Þýsku riddararnir sömdu um frið við Konungsríkið Pólland og Hertogadæmið Litáen.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 28. október - Andrea Della Robbia, ítalskur myndhöggvari (d. 1525).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 24. september - Ísabella af Bæjaralandi, Frakklandsdrottning, kona Karls 6. (f. um 1370).
- Tsjeng He, kínverskur landkönnuður (f. 1371).