1444
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |
Árið 1444 (MCDXLIV í rómverskum tölum)
Ísland
[breyta | breyta frumkóða]- Teitur Gunnlaugsson varð lögmaður um allt land (til 1450).
- Steinmóður Bárðarson varð ábóti í Viðeyjarklaustri.
- Gottskálk Keniksson, biskup á Hólum frá 1442, kom fyrst til Íslands.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 2. janúar - Jóhann Hunyadi og Vladislás III, konungur Ungverjalands unnu sigur á Ottómönum þar sem nú er Serbía.
- 15. febrúar - Stjepan Vukčić Kosača, stórhertogi Bosníu, skrifaði undir samning við Alfonsó V, konung Napólí, um bandalag gegn Lýðveldinu Feneyjum.
- 2. mars - Albönsku furstadæmin mynduðu bandalag og var George Kastrioti Skanderbeg lýstur leiðtogi í mótspyrnu gegn Ottómanveldinu.
- 22. maí - Hundrað ára stríðið: Fimm ára vopnahlé var samið um milli Englands og Frakklands.
- 6. ágúst - Portúgalir lönduðu 235 þrælum í Algarve. Þrælasala var opnuð.
- 15. ágúst - Konungsríkið Ungverjaland og Ottómanveldið skrifuðu undir friðarsamning.
- 26. ágúst - Frakkar gerðu árás á Sviss við Basel, unnu sigur en misstu marga menn.
- Ágúst - Murad II lét af völdum og Mehmed II sonur hans tók við völdum í Ottómanveldinu.
- 10. nóvember - Orrustan við Varna: Vladislás III beið ósigur fyrir Ottóman-Tyrkjum og lést. Ríkjabandalag Ungverjalands og Póllands leið undir lok.
- Portúgalskir landkönnuðir komu til ósa Senegalfljóts og Gambíufljóts í Vestur-Afríku.
- Egypskia soldáninum mistókst að hertaka Ródos.
- Bruni varð í Dómkirkju heilags Páls í Lundúnum.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 24. janúar - Galeazzo Maria Sforza, hertogi Mílanó (d. 1476).
- 28. júní - Karlotta, drottning Kýpurs (d. 1487)
- Donato Bramante, ítalskur arkitekt (d. 1514).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 9. mars - Leonardo Bruni, ítalskur húmanisti og sagnfræðingur (f. 1374).
- 10. nóvember - Vladislás III konungur Póllands og Ungverjalands (f. 1424).