Fara í innihald

Albanska

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Albanska
shqip
Málsvæði Albanía, Kosóvó, Norður-Makedónía, Svartfjallaland, Grikkland, Serbía, Ítalía
Heimshluti Balkanskaginn
Fjöldi málhafa 7,5 milljónir (2017)[1]
Ætt Indóevrópsk tungumál

 Albönsk mál
  Albanska

Skrifletur Latneskt stafróf
Opinber staða
Opinbert
tungumál
Albanía
Kosóvó
Norður-Makedónía
Svartfjallaland
Tungumálakóðar
ISO 639-1sq
ISO 639-2alb
SILSQI
ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode.

Albanska (albanska: shqip) er indóevrópskt tungumál og eina málið sem eftir er af grein albanskra mála (líka kölluð illyrísk mál) sem teljast til fornbalkanmála.[2] Albanska er þjóðtunga Albana. Stöðluð albanska er opinbert mál í Albaníu og Kosóvó. Albanska nýtur auk þess opinberrar stöðu í Svartfjallalandi og Norður-Makedóníu, og hefur stöðu minnihlutamáls á Ítalíu, í Króatíu, Rúmeníu og Serbíu. Albanska er móðurmál albanskra innflytjenda víða um heim.[1][3] Málnotendur eru taldir vera allt að 7,5 milljónir.[4][1]

Greinist í 2 megin mállýskur; norður (geg) og suður (tosk), en þessar tvær greinast aftur í margar undirmállýskur sem illa skiljast sín á milli. Elstu textar frá 15. öld. Þrjú málfræðileg kyn. Óákveðni greinirinn er undansettur en sá ákveðni eftirskeyttur. Nafnorð hafa 6 föll og í sumum mállýskunum 7. Nafnorð eru sett í fleirtölu með annars vegar sjö eftirskeytum (-ë, -a,-e, -ër, -ra -t, -nj) og hins vegar þremur stofn-breytingum þar sem -a er skipt út fyrir -e, -k fyrir -q og -g fyrir gj. Lýsingarorð venjulega eftirsett líkt og í rómönskum málum og beygjast eftir kyni og tölu en ekki falli. Í spurnarsetningum er ekki snúið við orðaröð, heldur er smáorðið a sett framan við setninguna, sem verður við það að spurningu. Einu stafirnir í albanska stafrófinu sem ekki er að finna í því enska er setillu-sé og tvípunkts-e. 40 % orðaforðans tökuorð frá latínu. Ennfremur þúsundvís af tökuorðum frá tyrknesku enda albanir undirsátar tyrkjaveldis um aldir.

Nokkrar setningar og orð

[breyta | breyta frumkóða]

Fyrstu töluorðin eru: një, dy, tre, katër, pesë, gjashtë, shtatë, tetë, nëntë, dhjetë. —

ShqipÍslenska
TungjatjetaHalló
MirëditaGóðan dag
Si jeni?Hvað segirðu gott?
MirëÉg segi allt gott
Falemenderit shumëTakk
PoJá
JoNei
A flisni islandisht?Talarðu íslensku?
Flas vetëm pak shqipÉg tala bara smá albönsku

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. 1 2 3 Klein, Jared; Brian, Joseph; Fritz, Matthias (2018). Handbook of Comparative and Historical Indo-European Linguistics. Walter de Gruyter. bls. 1800. ISBN 9783110542431.
  2. ↑ Matasović, Ranko (2019). A Grammatical Sketch of Albanian for Students of Indo European (PDF). Zagreb. bls. 39.
  3. ↑ Fatjona Mejdini (3 maí 2013). „Albania Aims to Register its Huge Diaspora“. Balkan Insight. Sótt 17 janúar 2017.
  4. ↑ Rusakov, Alexander (2017). „Albanian“. Í Kapović, Mate; Giacalone Ramat, Anna; Ramat, Paolo (ritstjórar). The Indo-European Languages. Routledge. bls. 552. ISBN 9781317391531.
Wikipedia
Wikipedia
Wikipedia: Albanska, frjálsa alfræðiritið
Albansk tungumál
Indóevrópsk tungumál
Albanska | Arvaníska | Tósk
  Þessi tungumálagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.