1400
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1400 (MCD í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Fædd
- Dáin
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 4. janúar - Hinrik 4. Englandskonungur kom upp um samsæri til að bjarga Ríkharði 2. úr varðhaldi og lét lífláta samsærismennina. Rikharður dó skömmu síðar, sennilega svalt hann til bana.
- 21. apríl - Thomas Percy, 1. jarl af Worcester, sagði af sér sem aðmírall Norðvestur-Englands og hóf uppreisn gegn Hinrik 4.
- 5. júní - Friðrik 1., hertogi af Brúnsvík og tilvonandi keisari rómverska ríkins var ráðinn af dögum.
- 16. september - Owain Glyndŵr var lýstur prins af Wales af fylgismönnum sínum og hóf árásir á virki Englendinga í norðaustur-Wales.
- 2. nóvember - Mamlúkar gáfu eftir borgina Aleppó til Tímúrveldisins. Sama ár tók Tímúr yfir Damaskus.
- 21. desember - Manúel 2. Palaíológos varð fyrsti (og eini) Býsanskeisarinn til að heimsækja England.
- 25. desember - Zhu Di, tilvonandi keisari Mingveldisins, hörfaði til Peking.
- Vallakía hratt árás Ottómanveldisins.
- Fædd
- 13. janúar - Jóhann prins af Portúgal (d. 1442).
- Owen Tudor, velskur aðalsmaður, elskhugi og sennilega eiginmaður Katrínar af Valois, Englandsdrottningar og ættfaðir Tudor-ættar.
- Dáin
- 14. febrúar (líklega) - Ríkharður 2. Englandskonungur (f. 1367).
- 25. október - Geoffrey Chaucer, enskt skáld og heimspekingur (f. um 1343).