1401
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1401 (MCDI í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Solveig Þorsteinsdóttir, kona Björns Jórsalafara, sigldi ein til Noregs á skipi þeirra en hann sat eftir heima í Vatnsfirði.
- Fædd
- Dáin
- (Hugsanlega) - Ormur Snorrason, sýslumaður, lögmaður og hirðstjóri.
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 6. janúar - Ruprecht var krýndur keisari rómverska ríkisins.
- 2. mars - William Sawtrey, kaþólskur prestur a Englandi var brenndur á báli fyrir trúvillu.
- 13. mars - Samógítar með stuðningi Vytautas hertoga Litáens brenndu tvo kastala þýsku riddaranna.
- 17. mars - Timur Lenk, höfðingi Mongóla, lagði undir sig Damaskus.
- 1. apríl - Tveir velskir bræður náðu Conwyökastala af Englendingum með brögðum.
- 9. júlí - Timur réðst inn í Bagdad og framdi fjöldamorð á 90.000 íbúum.
- Margrét Valdimarsdóttir mikla lét völdin í Kalmarsambandinu formlega í hendur Eiríks af Pommern. Hún var þó enn mikilsráðandi á bak við tjöldin.
- Erkibiskupinn af Kantaraborg fékk Hinrik 4. konung til að setja lög þar sem svo var mælt fyrir að hver sá sem ætti enska þýðingu á Biblíunni skyldi teljast útlægur trúvillingur.
- Zhu Di herjaði á Mingveldið í Kína en frændi hans var keisari þess.
- Fædd
- 12. maí - Shoko Japanskeisari (d. 1428).
- 27. október - Katrín Englandsdrottning, kona Hinriks 5. Englandskonungs (d. 1437).
- 21. desember - Masaccio, ítalskur listmálari (d. 1428).
- Dáin
- 25. maí - María Sikileyjardrottning (f. 1363).
- Anabella Drummond, drottning Skotlands, kona Róberts 3. (f. um 1350).